|
Golfspjall.is fór í loftið 2. apríl 2008. Vegna mikils áhuga aðstandanda vefsíðunnar á golfi og vegna hækkandi forgjafar var farið í að hanna vefsíðu um golf. Hugmyndin var að opna vefsíðu með fyrsta flokks spjallborði, til að halda í við vaxandi áhuga íslendinga á golfíþróttinni. Einnig að kylfingar og áhugafólk um golf gætu spjallað og komið hugarefnum sínum á framfæri á málefnalegan hátt.
Golfspjall.is er ekki með fréttaveitu, heldur er einfaldlega golfsamfélag fyrir alla kylfinga. Á síðunni er hægt að koma hugarefnum sínum á framfæri hvort sem er á spjallborðinu og/eða með því að senda inn aðsent efni. Allir eiga að geta fundið efni við sitt hæfi og eru margar hugmydir í bígerð til að gera golfsamfélagið Golfspjall.is vinsælan og áhugaverðan vettvang fyrir alla kylfinga.
Við hvetjum alla til að skrá sig á spjallborðið og eiga allir virkir meðlimir reglulega möguleika á að vinna glæsilega vinninga. Kylfingar og golfáhugafólk er hvatt til að senda inn áhugavert efni (fréttir eða greinar) um hvað eina sem tengist golfi.
Golfspjall.is er og verður í stöðugri þróun, allar ábendingar um það sem betur má fara og hugmyndir um hvað bæta megi við eru vel þegnar. Fyrir auglýsingar sendu tölvupóst á tigulgolf(hjá)gmail.com.
Góða skemmtun.
Einar Bjarni Jónsson
Vefstjóri
Umsjónarmenn:
Einar Bjarni Jónsson
Vefstjóri & héraðsdómari.
Eigandi Golfspjall.is
S: 772-1928
tigulgolf(hjá)gmail.com
Gunnar Hreiðarsson
S: 822-1969
gunnarh.golfspjall(hjá)gmail.com
Sigurður Geirsson
Alþjóðadómari (R&A)
S: 893-0766
siggeirs(hjá)gmail.com
Snorri Kristjánsson
Umsjónarmaður á spjallborði
snorri(hjá)isfinn.com
Gunnar Þór Sigurjónsson
Umsjónarmaður
„Golfspjall unglinga“
gunnarthor2(hjá)gmail.com
|