Að læra réttu handtökin alveg frá byrjun er mjög mikilvægt, sérstaklega þar sem golf er mjög tæknileg íþrótt og erfitt getur verið að venja sig af atriðum í sveiflunni sem orðnir eru að vana.
Sveiflur hjá mönnum geta verið mjög mismunandi, jafnvel hjá atvinnumönnum en það sem þeir hafa sameiginlegt eru að grundvallaratriðin eru ávallt þau sömu.
Lykillinn að góðri sveiflu og til að geta bætt leik sinn stöðugt og lækka forgjöfina er að tileinka sér rétt grundvallaratriði. Gripið, fótastaða, líkamsstaða, stefna, sveifluferill, sveiflutaktur og þungaflutningur eru allt atriði sem skipta mjög miklu máli -- ef kylfingur vill ná framförum. Ef þessi atriði eru ekki til staðar er ekki hægt að búast við miklum framförum, að skorið eða forgjöfin lækki, heldur verður ákveðin stöðnun á ákveðnum tímapunkti og margir stoppa í ákveðinni forgjöf.
Margir þekkja hve erfitt getur verið að komast niður fyrir 100-, 90-, 80 högg, þar getur spilað inní hugarfarslegur þáttur en fyrst og fremst eru það grundvallaratriðin sem skipta mestu máli.
Það besta fyrir þann sem er að byrja í golfi (aldrei of seint að fara til golfkennara) er að fara til kennara strax í byrjun og læra réttu handtökin. Að fá vídeogreiningu á sveiflunni og sjá sína eigin sveiflu á skjá með greiningu kennara er gulls ígildi, athugaðu hvort golfkennarinn geti tekið sveifluna þína á myndband, en margir betri golfkennarar bjóða upp á þessa þjónustu. Mikilvægt er öllum sem vilja bæta sig (líka lágforgjafarmönnum) er að þekkja "sveifluna", sveifluferilinn og boltaflugin og af hverju boltinn er t.d. slæsaður eða húkkaður, hvað veldur því. Þekkja lykilatriðin í sveiflunni, ef t.d. flest grundvallaratriði í sveiflunni eru rétt en önnur röng (sem viðkomandi heldur að séu rétt framkvæmd) getur það hamlað framförum.
Þess vegna er mikilvægt sérstaklega fyrir þá sem fara ekki oft til kennara að þekkja sveifluna, grundvallaratriðin og lykilatriði sem falla ekki beint undir heltu grundvallaratriðin.
Til að ná góðum framförum mæli ég með að allir fari til golfkennara (fái góða kennslu) og læri réttu tökin. Læra sveifluna í heild (láta golfkennarann fara yfir hana með þér), læra grundvallaratriðin og lykilatriði. Eftir golftíma hjá kennara er mjög gott að skrifa niður eftir tímann öll atriði sem kennarinn tók fyrir í tímanum og hvað eigi að æfa og hvernig, skrifa það sjálf(ur) niður eða biðja kennarann að gera það. Gott er að panta annan tíma og fara þá yfir þau atriði sem farið var í eftir að hafa æft vel.
Muna þarf að ekkert kemur að sjálfu sér. Til að ná árangri þarf að æfa rétt. Gæði er betra en magn, betra eru fáir góðir hittir boltar en margir illa hittnir. Ekki slá hugsunarlaust út í loftið eða einhversstaðar á æfingarsvæðið eða á brautina. Veldu alltaf ákveðin stað til að hitta á (mjög mikilvægt).
Að lokum er gott að spyrja golfkennarann hvernig best sé að haga æfingum á æfingasvæðinu og láta hann setja upp æfingaplan. Spyrðu golfkennarann spurninga, góður golfkennari á að geta svarað öllum spurningum vandræðalaust, hafðu þetta sérstaklega í huga ef þú þekkir ekki til kennarans.
Margir eru í golfi vegna útiverunnar eða til að spila í góðum félagsskap. En hver vill ekki spila betur en félaginn? Hver þekkir ekki tilfinninguna að ná sínu besta höggi, hinu fullkomna höggi? Er ekki ánægjan mest þegar góðu höggin eru slegin, fáum par eða fugl, þegar við bætum okkar besta eða lækkum forgjöfina. Hver vill ekki fjölga þessum ánægjustundum, þá er golfkennarinn besta leiðin til þess, síðan er það undir kylfingnum sjálfum komið að æfa sig til að ná settum markmiðum.
Hér getur þú tekið þátt í umræðum um þessa grein.
|